VíkingurUppboð

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: 21. október 2026

Gameday er uppboðsvettvangur sem rekinn er af Microwhale ehf., Ránargötu 3a, 101 Reykjavík. Microwhale ehf. er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem safnað er á vettvanginum. Nánar er fjallað um persónuvernd í 15. grein skilmálanna.

Hvaða upplýsingum við söfnum

  • Netfang — við nýskráningu eða innskráningu með Google.
  • Fullt nafn — við nýskráningu eða af Google-aðgangi þínum.
  • Símanúmer — við nýskráningu; notað til að hafa samband vegna greiðslu og afhendingar ef þú vinnur uppboð eða kaupir happdrættismiða.
  • Boð sem þú leggur — upphæð, tími og munur.
  • Happdrættismiðar sem þú kaupir — fjöldi, númer miðanna og hvernig þeir voru greiddir.
  • Greiðslur — upphæð, staða og hvenær greitt var. Við geymum engar kortaupplýsingar.
  • Hvenær þú samþykktir skilmálana, og hvort þú hefur afskráð þig af tölvupóstum um yfirboð.
  • Vefgreining, ef þú samþykkir — við notum vafrakökur til að skilja hvernig síðan er notuð og bæta hana.
  • Tæknilegar upplýsingar — IP-tala er notuð tímabundið til að verjast misnotkun (t.d. endurteknum innskráningartilraunum) og getur birst í þjónustuskrám.

Við söfnum hvorki greiðslukortaupplýsingum né heimilisfangi.

Til hvers við notum þær

  • Til að stofna og stýra aðganginum þínum.
  • Til að taka við boðum þínum og ákvarða sigurvegara.
  • Til að selja þér happdrættismiða og draga út vinninga.
  • Til að taka við greiðslu fyrir unnin uppboð og happdrættismiða.
  • Til að senda þér tölvupóst: til að staðfesta netfangið þitt við nýskráningu, ef reynt er að nýskrá netfang sem þegar á aðgang, þegar boð þitt er yfirboðið, þegar þú vinnur uppboð (með hlekk til að greiða), þegar miði þinn er dreginn út í happdrætti, og þegar þú biður um nýtt lykilorð.
  • Til að skilja hvernig síðan er notuð og bæta hana, ef þú samþykkir vefgreiningu.
  • Til að verja vettvanginn gegn svikum og misnotkun.

Samstarfsaðilar

Hvert uppboð er haldið af samstarfsaðila, t.d. íþróttafélagi. Samstarfsaðilinn fær nafn þitt, netfang og símanúmer:

  • ef þú vinnur uppboð, svo hann geti haft samband um greiðslu og afhendingu;
  • ef þú kaupir happdrættismiða, svo hann geti gengið frá greiðslu og afhent vinning ef miði þinn er dreginn út.

Samstarfsaðilar sjá ekki upplýsingar um aðra bjóðendur. Í boðasögu á vefnum eru nöfn bjóðenda dulin.

Vinnsluaðilar

Við notum þessar þjónustur til að reka vettvanginn:

  • Google Cloud — hýsing vefþjónustu, gagnagrunns og mynda (Hollandi).
  • Vercel — hýsing vefsíðna.
  • Basta — uppboðsvél. Basta fær einungis handahófskennt auðkenni þitt, aldrei nafn, netfang eða símanúmer.
  • Rapyd — greiðslumiðlun fyrir hönd samstarfsaðila. Rapyd fær upphæð og tilvísun í greiðsluna frá okkur; kortaupplýsingar slærðu inn beint hjá Rapyd.
  • Resend — sending tölvupósta.
  • PostHog — vefgreining, aðeins ef þú samþykkir.
  • Google — innskráning, ef þú velur að skrá þig inn með Google.

Vafrakökur

Við notum eina nauðsynlega vafraköku til að halda þér innskráðum, og vistum val þitt á ljósu eða dökku útliti í vafranum þínum. Ef þú samþykkir setjum við einnig greiningarvafrakökur frá PostHog til að sjá hvernig síðan er notuð. Ef þú hafnar geymir ein vafrakaka það val, svo þú sért ekki spurð(ur) aftur, og heimsóknir eru þá taldar án vafrakaka og án þess að tengja þær við þig. Þú getur breytt vali þínu hvenær sem er undir „Vafrakökur“ neðst á síðunni. Við notum engar markaðsvafrakökur.

Ef þú kemur á síðuna í gegnum hlekk frá samstarfsmiðli (t.d. fréttamiðli) man vafraflipinn hvaða hlekkur það var þar til honum er lokað, svo við sjáum hve margar heimsóknir hver hlekkur skilar. Það er ekki tengt þér.

Varðveisla

Upplýsingar þínar eru geymdar þar til þú biður um eyðingu, nema lög krefjist lengri varðveislu. Greiðslur og kaup á happdrættismiðum eru varðveitt vegna bókhalds, en eftir eyðingu án upplýsinga sem vísa á þig.

Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu þeirra, eyðingu, takmörkun vinnslu og flutningi gagna, og getur andmælt vinnslu. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar. Við svörum beiðnum innan 30 daga.

Eyðing gagna / Data deletion

Til að óska eftir eyðingu gagna þinna sendu tölvupóst á support@microwhale.com með efnislínunni „Delete my data" frá netfanginu sem aðgangurinn er skráður á. Innan 30 daga eyðum við aðganginum þínum, nafni, netfangi, símanúmeri og boðasögu. Greiðslur og kaup á happdrættismiðum eru varðveitt vegna bókhalds, en án nafns, netfangs, símanúmers eða annars sem vísar á þig. Boð sem þegar eru í uppboðsvél Basta eru aðeins tengd handahófskenndu auðkenni, sem eftir eyðingu vísar ekki lengur á þig.

To request deletion of your data, email support@microwhale.com with the subject "Delete my data" from the address your account is registered with. Within 30 days we erase your account, name, email address, phone number and bid history. Payments and raffle ticket purchases are kept for bookkeeping, with nothing left on them that identifies you.

Hafa samband

Spurningar um persónuvernd: support@microwhale.com.


English summary

Gameday is run by Microwhale ehf., Reykjavík, Iceland, the data controller. We collect your email, name, phone number, your bids, the raffle tickets you buy, your payments (amount and status — never card details, which you enter with Rapyd), when you accepted the terms, and your email preferences; IP addresses are used briefly to prevent abuse. With your consent, we also record how you use the site, linked to your account when you are signed in. If you win an auction or buy raffle tickets, the partner holding it receives your name, email and phone number to arrange payment and delivery. We email you to verify your address, when someone tries to sign up with it again, when you are outbid, when you win (with a link to pay), when your raffle ticket is drawn, and for password resets. Processors: Google Cloud (hosting, the Netherlands), Vercel (websites), Basta (auction engine, USA — receives only a random ID), Rapyd (payments, on the partner's behalf), Resend (email), PostHog (analytics, EU — only if you accept) and Google (sign-in, if you use it). We use one essential cookie to keep you signed in and PostHog analytics cookies only if you accept them; if you decline, one cookie remembers that and visits are counted without cookies and without linking them to you. We use no marketing cookies. To have your data deleted, see the section above: payments and raffle purchases are kept for bookkeeping, without anything that identifies you.